Um síðuna
Myndasíða
Custom
Email Me



Loksins loksins er komin hreyfing á heimasíðu málin. Við ætlum okkur að vera dugleg að setja inn efni enda komumst við ekki upp með neitt annað þegar erfinginn er mættur :-)


Engillinn mættur!

Engillinn okkar mætti á svæðið kl. 13:26 þann 15. ágúst. Það er c.a. 5 vikum fyrir tímann því það hafði komið í ljós að hann var ekki að stækka eðlilega. Eftir að reynt hafði verið að gangsetja fæðingu endaði með að hann var tekinn með keisara. Sem betur fer er engillinn okkar alheilbrigður og hress. Við fæðingu var hann 1600gr og 42cm. Já guttinn okkar er bara ótrúlegur. Er núna rétt rúmlega viku gamall en er strax búinn að fá tvo límmiða í skýrsluna sína, einn bangsa og eina sól. Þurftum ekki að bíða lengi eftir að hann dux-aði ;-)


Kominn heim :-)

Það var mikill gleðidagur núna á fimmtudaginn, 4. september en þá útskrifaðist engillinn okkar af Vökudeildinni og fékk að koma heim með foreldrum sínum. Ekkert smá flott að vera komin með guttan heim. Nóttina áður en við fórum með hann heim fengum við að gista á spítalanum, óþarfi að taka það fram að okkur varð ekki svefnsamt þá nótt.
Eftir að við komum heim er allt að komast í fastar skorður. Hann fær brjóst hjá mömmu sinni á um það bil 3ja tíma fresti en sefur að mestu þess á milli. Held honum líki vel að fá bara að borða þegar hann vaknar og er svangur fremur en að fara eftir stífu plani á spítalanum. Það kom hjúkrunarkona heim á föstudaginn til að vigta og mæla, hann er núna 2070gr sem þýðir að hann er að þyngjast eðlilega.
Meðan hann er undir 3000-3500gr verðum við að passa mjög vel uppá hann, takmarka heimsóknir, passa uppá allt hreinlæti og skapa rólegt og hlýtt umhverfi þannig að hann dafni sem best.


Núna á laugardaginn, 25. október var strákurinn okkar skírður hérna heima í Spóaásnum. Hann fékk nafnið Sævar Þór í höfuðið á öfum sínum. Okkur foreldrunum þótti vænt um að geta heiðrað feður okkar með því að láta nöfnin þeirra lifa áfram í litla sólargeislanum okkar. Bara frábært að geta núna notað nafnið og hætta notkun óteljandi gælunafna.


 

 

Ómar Gísli 2008

|Um síðuna| |Myndasíða| |Custom|